A.R. FILTERAR: LHÍ Á HÖNNUNARMARS

Þrír A.R. filterar fyrir Instagram reikninginn @transmissions_iua sem var framlag LHÍ á HönnunarMars 2021. Filterarnir voru stafrænn hluti af innsetningu á Hafnartorgi sem hét Lair of Aquatic Transmissions, risavöxnu fiskabúri þar sem gestir gátu hlustað á hlaðvarpsseríu um framtíðarmöguleika hönnunar. Sýningarstjórar voru Garðar Eyjólfsson og Johanna Seeleman.

Unnið í Spark AR og Blender. Duttu nýlega út af Instagram vegna tæknilegra breytinga en sjá má virkni þeirra í myndbandinu.